Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 17. nóvember 2014 21:29
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: FI 
Botnlið Parma fær refsistig í ítölsku efstu deildinni
Cassano er leikmaður Parma.
Cassano er leikmaður Parma.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar tala um það að Parma, botnlið efstu deildarinnar, fái refsistig vegna fjárhagsvandamála.

Parma var með sæti í Evrópudeildinni í ár en missti það vegna fjárhagsmála þar sem skattgreiðslur frá knattspyrnufélaginu bárust ekki á réttum tíma.

Nú er talið að seingreiðsla launa starfsmanna félagsins sé ástæðan fyrir reiði ítalska knattspyrnusambandins sem gæti dregið eitt til sex stig af liðinu.

Parma hefur aðeins unnið tvo deildarleiki á tímabilinu, fyrst gegn Chievo og svo óvænt gegn Inter.
Athugasemdir
banner
banner