Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 17. nóvember 2014 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ramsey: Ósanngjörn gagnrýni
Aaron Ramsey skoraði 16 mörk á síðasta tímabili.
Aaron Ramsey skoraði 16 mörk á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey hefur legið undir gagnrýni fyrir frammistöðu sína á tímabilinu og sérstaklega í 3-3 jafntefli gegn Anderlecht í síðustu umferð Meistaradeildarinnar.

Ramsey, sem er 23 ára gamall miðjumaður, segist ekki hafa neinar áhyggjur og að sum gagnrýni sem hann fær sé ósanngjörn.

,,Ég hef engar áhyggjur. Ég veit hvað ég get og ég er ennþá að ná mér almennilega eftir meiðsli," sagði Ramsey.

,,Ég er ekki ennþá 100 prósent klár í slaginn. Ég þarf að spila nokkra leiki í viðbót til að vera uppá mitt besta.

,,Ég hef ekki áhyggjur, sum gagnrýni sem ég fæ frá fólki er einfaldlega ósanngjörn."

Athugasemdir
banner