Franski miðvörðurinn Issa Diop lendir í London í dag til að gangast undir læknisskoðun hjá West Ham.
Diop er 21 árs gamall og kemur frá Toulouse fyrir 25 milljónir evra, eða rétt tæpar 22 milljónir punda.
Diop var eftirsóttur af fleiri félögum en Hamrarnir, sem ætla að styrkja sig mikið undir stjórn Manuel Pellegrini, voru ákveðnastir.
Lukasz Fabianski er talinn vera á leið til West Ham og þá kom Ryan Fredericks til félagsins fyrr í sumar.
Athugasemdir