Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 18. nóvember 2015 11:57
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: FIFA 
FIFA hafnar áfrýjunum Platini og Blatter
Blatter og Platini töpuðu áfrýjun í dag.
Blatter og Platini töpuðu áfrýjun í dag.
Mynd: Getty Images
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem það er tilkynnt að áfrýjunarnefnd sambandsins hafi hafnað áfrýjunum Sepp Blatter og Michel Platini sem hefur verið bannað að hafa afskipti af knattspyrnu tímabundið.

Sambandið segir að Blatter og Platini hafi fengið tilkynningu um þessa ákvörðun fyrr í dag og opinberaði hana svo strax á vef sínum.

Í tilkynningunni segir að Blatter og Platini sé frjálst að áfrýja ákvörðuninni til gerðardóms íþrótta, CAS.

Blatter og Platini eru næstum hálfnaðir með 90 daga bann frá fótbolta á meðan rannsókn á máli þeirra fer fram. Niðurstöðu er enn beðið í því máli.
Athugasemdir
banner
banner