Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. júlí 2017 21:44
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
2. deild: Jafnt í Norðurlandsslagnum
Kristinn Þór skoraði fyrir Magna í kvöld
Kristinn Þór skoraði fyrir Magna í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni 2 - 2 Völsungur
0-1 Bjarki Baldvinsson ('12)
1-1 Pétur Heiðar Kristjánsson ('26)
2-1 Kristinn Þór Rósbergsson ('59)
2-2 Sigvaldi Þór Einarsson ('75)

Topplið Magna fékk nágranna sína í Völsungi í heimsókn í 2. deild karla í kvöld.

Bjarki Baldvinsson kom Völsungi yfir á 12. mínútu leiksins en Magni jafnaði leikinn tæpum stundafjórðungi síðar. Jöfnunarmarkið gerði Pétur Heiðar Kristjánsson.

Eftir tæplega klukkutíma leik komust heimamenn yfir með marki frá Kristni Þór Rósbergssyni. En á 75. mínútu jafnaði Sigvaldi Þór Einarsson leikinn.

Hvorugt liðanna náði að stela sigrinum og jafntefli því staðreynd.

Magni er með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar en liðin fyrir neðan eiga leik til góða. Völsungur er í 6. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner