Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 21. mars 2015 15:52
Arnar Geir Halldórsson
Danmörk: Kjartan Henry skoraði þrennu
Fjögur mörk í tveim leikjum
Fjögur mörk í tveim leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Bronshoj 1-3 Horsens
1-0 Oke Akpoveta (´9)
1-1 Kjartan Henry Finnbogason (´20)
1-2 Kjartan Henry Finnbogason (´53)
1-3 Kjartan Henry Finnbogason (´56)

Kjartan Henry Finnbogason er heldur betur búinn að finna markaskóna í Danmörku.

Kjartan var á skotskónum um síðustu helgi þegar hann gerði eina mark Horsens í 1-2 tapi. Í dag gekk hinsvegar töluvert betur en Kjartan Henry gerði þrjú mörk fyrir liðið þegar það lagði Bronshoj af velli 3-1.

Sterkur útisigur fyrir Horsens sem eru þar með komnir í 5.sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner