Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. júlí 2015 11:24
Elvar Geir Magnússon
Emil Atla á leið í Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason, framherji KR, er á leið í Val á láni en 433.is greinir frá þessu.

Emil fer í læknisskoðun hjá Val í dag og ef ekkert óvænt kemur upp á þar mun hann ganga til liðs við félagið á láni.

Í sumar hefur Emil ekkert spilað með KR en hann er nýkominn heim eftir að hafa verið í láni hjá SC Preußen Münster í C-deildinni í Þýskalandi.

Á ferli sínum hefur Emil skorað 12 mörk í 62 leikjum með KR en í fyrra skoraði hann tvö mörk í 14 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner