Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 22. mars 2018 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan er samningslaus (Staðfest) - Á leið til Los Angeles
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic er orðinn samningslaus eftir rúmlega eitt og hálft ár hjá Manchester United.

Sænska goðsögnin ætlar þó ekki að leggja takkaskóna á hilluna alveg strax, en hann er á leið til Los Angeles Galaxy í bandarísku MLS deildinni.

Zlatan er 36 ára gamall og er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sem Svíþjóð hefur nokkurn tímann alið af sér.

Man Utd er eina félagið sem Zlatan hefur spilað með án þess að vinna deildina, en hann skoraði sigurmark Rauðu djöflanna í úrslitaleik deildabikarsins í fyrra.

„Frábærir hlutir taka enda og nú er kominn tími til að byrja nýjan kafla eftir tvö stórkostleg ár með Manchester United," skrifaði Zlatan á Instagram.

„Ég vil þakka félaginu, stuðningsmönnum, liðinu, þjálfaranum, starfsfólkinu og öllum sem deildu þessari ferð með mér. #rauðuraðeilífu"


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner