Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. ágúst 2014 20:20
Grímur Már Þórólfsson
Byrjunarliðin í konungsbikarnum - Ronaldo á bekknum
Ronaldo er á bekknum í kvöld
Ronaldo er á bekknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Byrjunarliðin í leik Real Madrid og Atletico Madrid í seinni leik liðanna í Konungsbikarnum eru mætt í hús. Leikurinn hefst kl. 20:30.

Fyrri leikur liðanna fór 1-1 og því má búast við hörkuleik.

Eins og búist var við þá er Angel Di María ekki í leikmannahóp Real Madrid en hann er líklegast á förum frá félaginu. Þá er Christiano Ronaldo á bekknum í kvöld vegna smávægilegra meiðsla.

Hjá Atletico Madrid eru nýliðarnir Antoine Griezmann og Mario Mandzukic í byrjunarliðinu.

Byrjunarlið:

Atletico Madrid: Moyá; Juanfran, Miranda, Godín, Siqueira; Tiago, Gabi; Koke, Raúl García, Griezmann, Mandzukic.

Varamenn: Jan Oblak, Cristian Ansaldi, José Giménez, Mario Suárez, Raul Jiménez, Saúl Ñíguez Esclapez, Cristian Rodríguez.

Real Madrid: Casillas; Carvajal, Ramos, Varane, Coentrao; X. Alonso, Modric, Kroos; James, Bale, Benzema.

Varamenn: Keylor Navas, Pepe, Marcelo, Álvaro Arbeloa, Isco, Asier Illarramendi, Cristiano Ronaldo.

Athugasemdir
banner
banner
banner