Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. ágúst 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Zidane ætlar ekki að selja James frá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, segir að James Rodriguez sé ánægður í herbúðum liðsins.

Hinn 25 ára gamli James spilaði einungis 13 mínútur í sigri Real Madrid á Real Sociedad um helgina.

Kolumbíumaðurinn hefur verið orðaður við Chelsea og Arsenal en Zidane segir að hann sé ekki á förum.

„Hann er í góðu lagi og hann er ánægður hér. Hann hjálpaði okkur að ná í þrjú stig," sagði Zidane eftir leikinn í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner