Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. september 2014 12:29
Magnús Már Einarsson
Luka Kostic í viðræðum við Hauka
Luka Kostic.
Luka Kostic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Luka Kostic á í viðræðum um að taka við liði Hauka samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.

Sigurbjörn Hreiðarsson er hættur sem þjálfari Hauka og líklegt er að Luka taki við.

Luka hefur þjálfað yngri flokka hjá Haukum undanfarin ár en í sumar var hann þjálfari hjá 2. flokki félagsins.

Luka stýrði síðast meistaraflokki árið 2010 þegar hann var þjálfari Grindvíkinga.

Á dögunum kom Luka inn í þjálfarateymi Vals en hann mun klára tímabilið með liðinu í Pepsi-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner