ÍBV 1-0 Haukar
1-0 Sigríður Lára Garðarsdóttir (77´)
Bikarkeppni kvenna fór aftur af stað í kvöld og var fyrsti leikur á dagsskrá viðureign ÍBV og Hauka í Vestmannaeyjum en þessi lið mættust einmitt í deildinni fyrir ekki svo löngu síðan.
Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleiknum en hvorugu liðinu tókst að skora.
Í seinni hálfleiknum lifnuðu leikar við og náðu ÍBV að komast yfir á 77. mínútu með marki frá Sigríði Láru Garðarsdóttur.
Þannig stóðu leikar til leiksloka og því eru það ÍBV sem að halda áfram í Borgunarbikarnum á meðan að Haukar eru úr leik.
Athugasemdir