Juventus hefur staðfest að framherji liðsins, Paulo Dybala er meiddur á læri en hann varð fyrir meiðslunum í 1-0 tapinu gegn AC Milan um helgina.
Hinn 22 ára gamli Dybala þurfti að fara af velli eftir 33 mínútur vegna meiðslanna.
Hann hefur nú gengist undir rannsókn og ljóst er að hann verður frá í einhvern tíma.
Dybala hefur skorað fjögur mörk í 11 leikjum í öllum keppnum hingað til á leiktíðinni.
Athugasemdir