Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. apríl 2016 09:30
Fótbolti.net
Leit að fyrirtæki til að bjarga Draumaliðsdeildinni!
Mynd: Draumaliðsdeildin
Fótbolti.net hefur fengið fjölda fyrirspurna um hvort Draumaliðsdeildin í íslenska boltanum verði í gangi í sumar.

Mikil spenna er fyrir Pepsi-deildinni sem fer af stað sunnudaginn 1. maí.

Mikil óvissa ríkir um hvort hægt verði að halda Draumaliðsdeildinni úti í sumar en leitað er að styrktaraðila fyrir deildina sem fær þá nafn sitt við hana.

Nú er staðan þannig að við erum í kapphlaupi við tímann og grípum til þess örþrifaráðs að leita að fyrirtæki sem væri til í að bjarga deildinni svo hún verði á sínum stað.

Deildin hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár en hún er í anda Fantasy-deildarinnar vinsælu sem hefur tröllriðið öllu í enska boltanum.

Ef þú hefur áhuga á að bjarga deildinni eða vilt nánari upplýsingar þá er síminn 894-9200 | Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri eða á netfanginu [email protected]
Athugasemdir
banner
banner