Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
   lau 25. febrúar 2017 18:13
Elvar Geir Magnússon
Bergsveinn: Liðin hafa fylgst vel með Chelsea
Bergsveinn tekur við leiðbeiningum frá Heimi Guðjónssyni þjálfara.
Bergsveinn tekur við leiðbeiningum frá Heimi Guðjónssyni þjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er með fullt hús að loknum tveimur fyrstu umferðum í Lengjubikarnum en liðið vann 2-1 sigur gegn Víkingi Reykjavík í dag.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  2 FH

FH-ingar höfðu tögl og haldir í fyrri hálfleik og voru 2-0 yfir í leikhléi en Víkingar voru sprækari eftir hlé.

„Ég er þokkalega sáttur við að við séum með sex stig eftir tvo leiki. Ég er samt ekki nægilega sáttur við seinni hálfleikinn í dag og seinni hálfleikinn í síðasta leik. En við klárum leikina. Við þurfum að byrja að spila vel í 90 mínútur," segir Bergsveinn Ólafsson, miðvörður FH-inga.

„Mér fannst við alveg vera með leikinn í fyrri hálfleik og við töluðum um það í hálfleik að stoppa ekki. Víkingarnir lögðu seinni hálfleikinn vel upp en við eigum að leysa þetta betur."

FH-ingara hafa veriða að spila með þriggja hafsenta kerfi líkt og vel hefur heppnast hjá Chelsea á Englandi.

„Ég fíla það mjög vel. Mér finnst gaman að breyta til. Í gegnum allan fótboltaferilinn hefur maður verið í fjögurra manna vörn og það er gaman að prófa eitthvað nýtt. Það er búið að ganga vel og er drullugaman."

„Það er helmingur liðanna í deildinni farin að prófa þetta kerfi. Ætli þau hafi ekki fylgst vel með Chelsea undanfarið. Þetta gengur vel hjá okkur og meðan það er þannig þá höldum við áfram í þessu," segir Bergsveinn en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner