Middlesbrough 0 - 2 Norwich
0-1 Cameron Jerome ('12)
0-2 Nathan Redmond ('15)
0-1 Cameron Jerome ('12)
0-2 Nathan Redmond ('15)
Það var mikið um dýrðir á Wemley leikvanginum í Lundúnum þegar Norwich vann Middlesbrough í hinum rándýra umspilsúrslitaleik. 85.536 áhorfendur mættu á völlinn og létu vel í sér heyra.
Cameron Jerome kom Norwich yfir eftir tólf mínútna leik þegar hann skoraði úr þröngu færi. Nathan Redmond bætti svo við marki aðeins þremur mínútum síðar eftir laglega sókn. Vel klárað.
Bournemouth, Watford og Norwich taka því sæti Burnley, QPR og Hull í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir