Walter Mazzarri, þjálfari Inter er sannfærður um að liðið sitt getur komið á óvart í vináttuleik gegn Real Madrid í kvöld.
Hann hefur sagt að hann vilji láta leikmenn Real skammast sín eftir leikinn en leikið er í Guinness Cup í Bandaríkjunum.
Inter hefur átt erfiða tíma nýlega og enduðu í fimmta sæti í Seria A á meðan Real Madrid vann sinn tíunda Meistaradeildar titil.
En Mazzarri er spenntur fyrir að mæta Real.
,,Það skiptir engu þótt það hefur ekki gengið síðustu ár, ég vill að besta lið Evrópu skammist sín eftir leikinn í kvöld," sagði Mazzarri.
,,Þetta verður erfiður leikur en við viljum hafa eitthvað jákvætt til að byggja á."
Athugasemdir