Barry Cotter heitir leikmaður unglingaliðs Limerick á Írlandi og er hann sláandi líkur brasilíska fótboltasnillingnum Neymar.
Cotter er 16 ára gamall sóknarmaður og er ekki aðeins nauðalíkur Neymar, heldur er hann líka með svipað mikið sjálfstraust þar sem hann segist ætla að skora eitt til tvö mörk á leik út tímabilið.
Cotter er 16 ára gamall sóknarmaður og er ekki aðeins nauðalíkur Neymar, heldur er hann líka með svipað mikið sjálfstraust þar sem hann segist ætla að skora eitt til tvö mörk á leik út tímabilið.
„Ég er búinn að koma mér vel fyrir, ég nýt þess að vera hér," sagði Cotter eftir 2-0 sigur í fyrsta leik tímabilsins.
„Ég er himinlifandi með að ganga til liðs við félagið og ég vonast eftir bjartri framtíð.
„Þetta er gífurlega stórt tækifæri, ég gæti ekki beðið um meira. Ég vona að við endum í einu af þremur efstu sætunum og ætla að skora eitt eða tvö mörk á leik út tímabilið."
Athugasemdir