Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. nóvember 2015 20:00
Arnar Geir Halldórsson
Danmörk: Theodór Elmar spilaði í tapi
AGF tapaði í kvöld
AGF tapaði í kvöld
Mynd: Getty Images
Viborg 1-0 AGF
1-0 Jeppe Curth (´16)

Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar AGF heimsótti Viborg.

Theodór Elmar Bjarnason var í byrjunarliði AGF sem lenti undir eftir sextán mínútna leik þegar Jeppe Curth skoraði fyrir heimamenn.

Elmari var skipt af velli snemma í síðari hálfleik en liðsfélögum hans tókst ekki að jafna metin.

Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins en eftir leikinn er Viborg komið í níunda sæti deildarinnar á meðan Elmar og félagar sitja í tíunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner