Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. febrúar 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Van Dijk ekki til sölu
Mynd: Getty Images
Ralph Krueger, formaður Southampton, segir að varnarmaðurinn öflugi Virgil van Dijk sé ekki til sölu.

Van Dijk var búinn að vera frábær á tímabilinu áður en hann meiddist illa á ökkla á dögunum.

Hinn 25 ára gamli Van Dijk hefur verið orðaður við stærri félög en Krueger segir að leikmaðurinn sé ekki á förum.

„Virgil er skuldbundinn okkur í langan tíma og við sjáum ekkert annað fyrir okkur í framtíðinni," sagði Krueger.

„Hann er fyrirliði okkar og við sjáum hann hvergi annars staðar en í röndóttum rauðum og hvítum búningi."
Athugasemdir
banner