Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. apríl 2016 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
Gauti Gautason hættur í KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Gauti Gautason mun ekki spila með KA í sumar eftir að hafa komist að samkomulagi við stjórn félagsins um að fá að hætta.

Gauti er fæddur 1996 og lék 15 leiki fyrir KA í 1. deild sumarið 2014 en kom lítið við sögu í fyrra.

„Gauti Gautason hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnudeild KA um að fá að leita á önnur mið. Knattspyrnudeild KA óskar Gauta góðs gengis í framtíðinni," stendur í fréttatilkynningu frá KA.

Gauti hefur leikið 15 leiki fyrir U17 og U19 ára landslið Íslands en hefur ekki komið við sögu með landsliði síðan 12. október 2014.
Athugasemdir
banner
banner