Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. apríl 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atli Sigurjóns æfir með KR - Á leið aftur í Vesturbæinn?
Atli er fyrrum leikmaður KR.
Atli er fyrrum leikmaður KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Sigurjónsson æfir þessa stundina með sínu gamla liði, KR. Þetta kemur fram á Twitter.

Atli er í augnablikinu án liðs eftir að hafa óvænt yfirgefið Breiðablik um miðjan þennan mánuð.

Atli er uppalinn hjá Þór á Akureyri, en fór eftir góða frammistöðu þar til KR árið 2011. Hann var í Vesturbænum til 2015.

Þá gekk hann í raðir Breiðabliks, en honum tókst ekki að sýna sínar bestu hliðar í Breiðabliksbúningnum.

Nú er hann að leita sér að nýju liði og spurning hvort KR komi til greina. Hann æfði með hollenska félaginu Almere City á dögunum og gekk það vel. Það er óvitað hvort að hann fái samning þar.

Pepsi-deildin byrjar á morgun, en KR á fyrsta leik á mánudaginn, á heimavelli gegn Víkingi R..




Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner