Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 29. október 2014 17:01
Elvar Geir Magnússon
Ólafur Páll: Andvaka í einhverja daga
Ólafur Páll Snorrason.
Ólafur Páll Snorrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun og ég var andvaka í einhverja daga. Ég er samt sem áður mjög stoltur af sjálfum mér að hafa haft kjark í að taka þetta skref. Það er mikil uppbygging sem á sér stað í Fjölni," segir Ólafur Páll Snorrason.

Ólafur hefur verið fyrirliði FH undanfarin tvö ár en er nú kominn í Fjölni sem spilandi aðstoðarþjálfari.

„Persónulegur árangur minn kristallast hjá FH. Mín bestu fótboltaár hafa verið þar. Ég er FH-ingur, ég flæki málin ekkert. Ég er mikill FH-ingur en Fjölnir er uppeldisfélag mitt og hefur alltaf átt stað í mínu hjarta."

„Ég horfi til þess að vera þjálfari í framtíðinni og held að ég fái hvergi betra tækifæri en hér hjá Fjölni. Ég legg mikinn metnað í að Fjölnir safni liði og vonandi koma fleiri og styrkja liðið. Ég er gríðarlega spenntur fyrir því starfi sem er í gangi í Grafarvoginum."

Verður ekki erfitt fyrir Heimi Guðjónsson að fylla skarð Ólafs?

„Heimir er besti þjálfari landsins og ég á honum mikið að þakka. Það eru frábærir leikmenn fyrir í FH og geta fyllt mitt skarð. FH er það sterkt lið að það verður ekkert vesen fyrir þá að finna alvöru leikmann," segir Ólafur en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner