Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. mars 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Ross Barkley vill spila frammi
Vill spila frammi.
Vill spila frammi.
Mynd: Getty Images
Ross Barkley, miðjumaður Everton, segir að draumur sinn sé að spila í fremstu víglínu hjá Everton.

Barkley vill fá að spila í frjálsari stöðu þar sem hann getur tekið meiri þátt í sóknarleiknum.

,,Ég tel að ég geti gert mest þar. Þá get ég verið frjáls á vellinum, tekið leikmenn á, skotið á markið og skapað færi," sagði Barkley.

Hinn 21 árs gamli Barkley hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili.

,,Ég veit að ég hef ekki staðið mig eins vel og ég get en þú verður að ganga í gegnum erfiða daga til að fá að upplifa frábæra daga á ferli þínum," sagði Barkley.
Athugasemdir
banner
banner