Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 30. maí 2016 16:34
Magnús Már Einarsson
Ágúst framlengdi við Blika - Ætlar út í framtíðinni
Ágúst og Arnar Grétarsson þjálfari Breiðabliks við undirskriftina í dag.
Ágúst og Arnar Grétarsson þjálfari Breiðabliks við undirskriftina í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Águst Eðvald Hlynsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Breiðablik. Ágúst er í U17 ára landsliði Íslands en hann skoraði með meistaraflokki Blika gegn Kríu í Borgunarbikarnum í síðustu viku.

„Ég er mjög ánægður með að þetta sé frágengið og klappað og klárt," sagði Ágúst við Fótbolta.net eftir undirskriftina í dag.

Ágúst hefur oft farið erlendis á reynslu og mörg félög utan landsteinana hafa sýnt honum áhuga. Hann stefnir á að fara út í atvinnumennsku síðar meir.

„Hugurinn stefnir út en hvenær það verður kemur í ljós. Hvort það verði í sumar eða seinna."

Hinn sextán ára gamli Ágúst varð í síðustu viku yngsti markaskorari meistaraflokks Breiðabliks frá upphafi en Arnar Grétarsson, þjálfari liðsins, átti fyrra metið.

„Hann grínaðist með það eftir á að hann hefði ekki látið mig spila ef hann hefði vitað af þessu meti. Hann er samt örugglega stoltur af mér," sagði Ágúst.

Hér að ofan má sjá viðtalið við Ágúst í heild.
Athugasemdir
banner
banner
banner