Reynsluboltinn Ricardo Quaresma var á skotskónum í gærkvöldi þegar portúgalska landsliðið mætti því norska í vináttuleik.
Quaresma kom Portúgölum á bragðið og áður en yfir lauk höfðu Portúgalir gert þrjú mörk gegn engu marki Norðmanna.
Mark Quaresma var í laglegri kantinum en hann hefur verið þekktur fyrir sín glæsimörk í gegnum tíðina.
Portúgal er í riðli með Íslendingum á EM í Frakklandi en liðin mætast þann 14.júní næstkomandi í St.Etienne.
Athugasemdir