Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 30. september 2014 19:30
Magnús Már Einarsson
Osvaldo hefur engan áhuga á að fara aftur til Southampton
Osvaldo í leik gegn Stjörnunni í sumar.
Osvaldo í leik gegn Stjörnunni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Framherjinn Dani Osvaldo segist ekki hafa neinn áhuga á að fara aftur til Southampton.

Osvaldo er í láni hjá Inter á þessu tímabili en hann var sendur til Juventus á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.

Osvaldo var þá sendur á lán eftir að hafa lent í slagsmálum við Jose Fonte á æfingu hjá Southampton og hann hefur engan áhuga á að fara aftur til enska félagsins.

,,Félagið er stórt og þetta er stórt verkefni," sagði Osvaldo um Inter.

,,Mín ósk er að vera áfram hér. Ég vil vera áfram í sama liði í meira en tvö ár."
Athugasemdir
banner
banner