SKÝRSLAN: Breiðablik og Stjarnan gerðu jafntefli í baráttunni um Arnarneshæðina
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var frekar dauður. Síðari hálfleikurinn allt önnur skemmtun. Stjarnan kemst verðskuldað yfir í leiknum og Breiðablik kveikti þá á sér og náðu inn jöfnunarmarki og óheppnir að ná ekki að stela þessu í lokin en Blikarnir fengu þrjú dauðafæri til þess að klára leikinn síðustu tíu en inn vildi boltinn ekki.
Bestu leikmenn
1. Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik)
Jason Daði fær maður leiksins fyrir mér. Byrjar á bekknum, kemur inn á og kemur inn með alvöru líf og jafnar leikinn fyrir Blika eftir að liðið lenti undir 1-0. Kom sér í færi og hefði átt að skora eitt ef ekki tvö í viðbót.
2. Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Gummi Kri var rosalega öflugur í dag og tapaði varla einvígi og stoppaði fullt af áhlaupum Breiðablik í kvöld. Henrik Máni fær líka smá shout en hann var öflugur í uppspili Stjörnunnar í kvöld og stoppaði nokkrar sóknir hjá Breiðablik.
Atvikið
Færið í lokin er atvik leiksins þegar Anton Logi fékk boltann og setti hann inn á teiginn á Klæmint sem tókst á einhvern ótrúlegan hátt ekki stýra boltanum í netið. Dauðafæri.
Hvað þýða úrslitin?
Blikarnir er í þriðja sæti deildarinnar með 34.stig og er liðið sjö stigum á eftir toppliði Víkings. Stjarnan er í fjórða sæti deildarinnar með 22.stig.
Vondur dagur
Águst Hlynsson vinur minn var eitthvað off í dag og var tekinn útaf í hálfleik. Klæmint Olsen fékk dauðafæri í lokin til að vinna leikinn fyrir Blikana.
Dómarinn - 7.5
Vilhjálmur Alvar og hans menn flottir í dag. Ekkert atriði sem hægt er að gagnrýna fyrir.




