SKÝRSLAN: HK fara létt með FHL á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
HK var sterkari liðið frá byrjun og til enda. Það var mjög lítill liðsandi hjá FHL, sem HK náði að nýta sér vel. Þetta hefði verið mikli stærra tap ef það hefði ekki verið fyrir Ashley í marki FHL.
Bestu leikmenn
1. Brookelynn Paige Entz
Átti mörg dauðafæri og átti alveg að skora fleiri mörk í þessum leik. Hún skoraði 2 glæsileg mörk og var afar spræk í leiknum.
2. Guðmunda Brynja Óladóttir
Átti flotta kafla í leiknum og gaf sitt allt. Átti flotta stoðsendingu í þriðja marki HK.
Atvikið
HK átti 30+ skot í þessum leik og um hálfpartinn af þeim skotum enduðu á rammann. HK var mikið að skjóta boltanum fyrir utan teigin og náði Brookelynn að skora mark úr ein af þeim skotum.
Hvað þýða úrslitin?
HK fer upp í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig eftir 12 leiki. FHL situr enn í 7. sæti með 13 stig.
Vondur dagur
Það var alvöru andleysi hjá FHL í þessum leik. Það var engin nema Ahsley í markinu sem hafði einhvern áhuga á að spila þennan leik. Það vantaði að halda boltanum betur, betri vörn og að nýta færin sín betur.
Dómarinn - 6
Fínn dæmdur leikur hjá Ásgeiri og hans teymi. Það voru nokkur atvik þar sem hann mætti hafa spjaldað leikmann og svo var uppbótar tíminn í lok leiksins einum of lengi.



