SKÝRSLAN: Selfoss að hleypa lífi í botnslaginn eftir sigur á Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Mjög jafn leikur en Selfoss líklegri seinni hálfleik og fengu víti sem Bergrós klárði mjög vel
Bestu leikmenn
1. Emelía Óskarsdóttir (Selfoss)
Var mikið í boltanum og var líflegasti leikmaður Selfoss þangað til hún fór útaf á 90. mínútu
2. Sif Atladóttir (Selfoss)
Lét einu sinni labba framhjá sér inn í teig Selfoss en Idun bjargaði henni annars lítið hægt að setja út á hennar leik
Atvikið
Erfitt að setja vondan dag og atvik á það sama en það var lítið sem gerðist í leiknum og því verð ég að setja atvikið á vítið sem Selfoss fékk alveg upp úr engu eftir slaka sendingu frá Anitu
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss núna þrem stigum frá ÍBV sem er í 8. sæti og eiga einn leik inni en Keflavík ennþá með 12. stig einu sæti fyrir ofan Selfoss
Vondur dagur
Vondur dagur hjá Anitu Lind sem gaf slaka sendingu til baka á Veru sem var aðeins of sein í boltann og braut á Barbáru, aðeins betri sending hefði komið í veg fyrir þetta víti sem reyndist sigur markið.
Dómarinn - 8/10
Hélt góðri línu út leikinn og stjórnaði honum vel



