Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Frábærar
Leiknir R.
Leiknir R.
1 - 0
Þór
Þór
Omar Sowe 95'1 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Eðlisfræðingar gátu hætt að reikna þegar flautumarkið kom

Hvað réði úrslitum?

Mómentið í lokin féll með Leikni sem hafði gert nóg til að skora mark í leiknum og voru heimamenn líklega búnir að skora eitt í upphafi seinni hálfleiks þegar Hjalti átti skot í þverslána og niður. Verkfræðingurinn Vigfús nefndi í viðtali að eðlisfræðilega væri nánast ómögulegt að boltinn hefði ekki farið yfir línuna en hann gat hætt að reikna í lok leiks. Leiknismenn fengu ekki markið þegar Hjalti skaut en það kom í staðinn á lokasekúndunum. Frábært fyrir heimamenn en gífurlega svekkjandi fyrir Þórsara. Leikurinn var heilt yfir nokkuð jafn en stærstan hluta seinni hálfleiks voru Þórsarar ofan á en markið vildi ekki koma og það fengu þeir í bakið. Leiknismenn geta verið ánægðir með að vinna leik þar sem þeir voru ekki frábærir en vilja eflaust fá betri frammistöðu í næsta leik. Ég ætla líka að nota þetta box í að hrósa lýsendum leiksins sem lýstu leiknum á Youtube. Þeir komu með skemmtilega vinkla og klisjur sem undirritaður hafði gaman af sitjandi við hlið þeirra. Þeir krydduðu þessar níutíu mínútur með skemmtilegheitum og léttu bulli á köflum. Upptakan af leiknum var hins vegar ekkert frábær.

Bestu leikmenn

1. Hjalti Sigurðsson

Frábær í leiknum og lagði upp sigurmarkið með góðri hornspyrnu. Hjalti hefur verið að finna taktinn heldur betur að undanförnu og er einn allra heitasti leikmaður deildarinnar um þessar mundir.

2. Marc Rochester Sörensen

Mjög mikil gæði í þessum danska miðjumanni sem gerir heilmikið fyrir Þórsliðið úti á velli, býr yfir mikill reynslu sem sést vel í návígum og ákvarðanatöku. Þórsarar hefðu átt að nýta föstu leikatriði hans betur.

Atvikið

Fyrst var það markið eða ekki markið en sigurmarkið á lokasekúndunum hlýtur að trompa það.

Hvað þýða úrslitin?

Fjórði sigur Leiknis í röð og fimmtán stig af síðustu átján mögulegum. Liðið er í 4. sæti deildairnnar, þremur stigum á undan Þór sem er í 7. sæti. Þór er áfram með einungis þrjú mörk skoruð á útivelli og tvö stig fengin. Markatalan 3:19.

Vondur dagur

Það var enginn sem var lélegur í leiknum. Kannski leiðinleg klisja að sleppa einhverjum en það stóð hreinlega enginn út. Menn áttu slæma ákvörðun hér og þar en ekkert sem var gegnumgangandi í leiknum. Ég fer auðveldu leiðina, því miður, og skelli þessu á færanýtingu Þórsara í leiknum. Fengu margar fínar stöður en herslumunurinn góði var ekki til staðar. Spilamennskan heilt yfir góð hjá Þór og vonandi gerir það eitthvað fyrir liðið í framhaldinu.

Dómarinn - 7

Erlendur var fínn úti á velli. Erfitt fyrir hann að sjá hvort boltinn var inni og þyrfti marklínutækni í slíkt atvik. Láki vildi svo sjá seinna gula á Hjalta fyrir tæklingu seint í leiknum en Hjalti kemst í boltann. Afleiðingarnar urðu þó þær að Aron Ingi skall með hnakkann í grasið. Á Erlendur að horfa á boltann eða afleiðingarnar?
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.