Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Tindastóll
Tindastóll
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 21'1 - 01 - 164' Murielle TiernanSædís Rún Heiðarsdóttir 83'2 - 1
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Stjarnan hafði betur gegn Tindastól í mikilvægum leik

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum var það að Tindastóll nýtti ekki færin sín sem varð þeim að falli. Það voru mörg færi hjá báðum liðum í leiknum en Stjarnan voru meira afgerandi.

Bestu leikmenn

1. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir

Átti frábæran fyrri hálfleik og skilaði marki. Var að skapa mikið og vinna boltann hátt uppi.

2. Sædís Rún Heiðarsdóttir

Setti sigurmarkið seint í leiknum sem var ekki af verri endanum. Gerði sitt og gott betur.

Atvikið

Bergljót Ásta Pétursdóttir fór sárþjáð út af velli og talið að það séu alvarleg hnémeiðsli. Vonum að hún nái góðum og skjótum bata.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin standa í stað á töflunni en Stjarnan er nú komið fjórum stigum á undan Tindastól og í þæginlegri fjarlægð frá botnbaráttunni.

Vondur dagur

Aldís María Jóhannsdóttir átti ekki spes leik fyrir framan markið í dag og klikkaði allavega úr tveimur dauðafærum sem reyndist dýrkeypt.

Dómarinn - 8

Reynir Ingi Finnsson var bara mjög flottur í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.