SKÝRSLAN: Endurkoma í Mjóddinni
Hvað réði úrslitum?
Baráttan og viljinn í ÍR liðinu. Gáfust ekki upp þrátt fyrir mikið mótlæti. Sækja sigur í leik þar sem allt var undir og það eftir að hafa lent 2-0 undir. Reynsluboltar eins og Ásgeir Börkur og Alexander Kostic eru ástæðan fyrir því að liðið tryggði sigurinn.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Leiðtogi af bestu gerð. Það sést best þegar hann er ekki inn á vellinum hvað hann gerir mikið fyrir þetta lið. Guðsgjöf fyrir Breiðhyltinga að Ásgeir hafi samið við ÍR.
2. Ívan Óli Santos
Skorar markið sem byrjaði endurkomuna og sótti vítið í öðru markinu. Frábær leikmaður sem hefur breytt gengi liðsins.
Atvikið
Hrafn Hallgrímsson skorar þriðja markið og ástríðan skein í Breiðholtinu. Skrýtið mark. Flestir héldu að dómarinn hafi flautað brot og voru hættir. Hrafn var hinsvegar vakandi og skoraði markið mikilvæga. Frábær leikmaður sem hefur stigið vel upp í sumar.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR fer upp með sigri í lokaumferðina nema að KFA vinni með 6 mörkum meira en Breiðhyltingarnir.
Vondur dagur
Að ná ekki neinu út úr leik eins og þessum eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir er bara klaufalegt.
Dómarinn - 7
Vítadomurinn hárréttur. Gula spjaldið á Sæmund var eitthvað það undarlegasta sem ég hef séð. Annars fínn.



