Fotbolti.net
Ingi Snær Karlsson
Lengjudeild kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 1
HK
HK
0 - 18' Guðmunda Brynja Óladóttir
Dómari: Magnús Garðarsson
Myndir: Hrefna Morthens

SKÝRSLAN: HK vann þegar bikarinn fór á loft

Hvað réði úrslitum?

HK skoraði snemma og hélt út. Víkingar sköpuðu sér nóg af færum en náðu ekki að skora.

Bestu leikmenn

1. Sara Mjöll Jóhannsdóttir

Varði endalaust af boltum og dauðafærum og kórónaði leik sinn með hreinu laki.

2. Sigdís Eva Bárðardóttir

Var mjög áræðin á kantinum og HK var í pínu basli með hana. Átti fullt af fyrirgjöfum sem skapaði hættu.

Atvikið

Markið hjá Guðmundu var fallegt og vel tekið.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrir leik var ljóst að Víkingar væru búnar að sigra deildinna og HK væri öruggt með fjórða sætið.

Vondur dagur

Þrátt fyrir að hafa ekki skorað mark þá áttu Víkingar ekki vondan dag sóknarlega. Sara Mjöll, markvörður HK átti þá stórleik og hélt hreinu.

Dómarinn - 8

Bara mjög fínn í dag
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.