SKÝRSLAN: Afturelding fór létt með Ægi
Hvað réði úrslitum?
Afturelding stýrði leiknum frá fyrstu mínútu en Ægismenn lágu djúpt niðri og gerðu það vel. Það tók heimamenn 37. mínútur að brjóta ísinn en eftir það þá var augljóst hvert stigin 3 væru að fara.
Bestu leikmenn
1. Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar var frábær í dag, maður sá að hann væri að fara skora á upphafsmínútunum, síógnandi og skilaði það í tveimur mörkum og einni stoðsendingu.
2. Aron Elí Sævarsson
Aron var mjög flottur í dag átti stóran þátt í fyrsta markinu þegar hann keyrði upp vinstri kantinn og kom boltanum fyrir á Elmar Kára. Aron átti svo frábæra fyrirgjöf á Sindra Sigurjóns sem kláraði svo vel í síðasta marki Aftureldingar.
Atvikið
Það var mikil gleði í hálfleik þegar Steindi Jr. og Himmi voru með Bingó og voru veglegir vinningar í boði. Alltaf frábær umgjörð í Mosó!
Hvað þýða úrslitin?
Allt bendir til þess að Afturelding fari í umspilið til að komast upp nema ef ÍA tapar gegn Gróttu og Afturelding vinnur Þrótt í síðustu umferð.
Ægir eru auðvitað fallnir og lítið hægt að gera í því.
Vondur dagur
Mér fannst í tveimur mörkum Aftureldingar að Stefán Þór ætti að gera betur, of einfalt að geta bara lagt boltann í hornið ekki einu sinni fast. Þrátt fyrir það átti Stefán samt flottar vörslur líka inná milli.
Dómarinn - 9
Twana Khalid Ahmed og félagar voru mjög flottir í dag, lítið sem ég get sett út á dómgæsluna.



