SKÝRSLAN: Af botninum á toppinn
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar voru betra fótboltaliðið í dag og verðskuldaði sigur sinn. Fjölnisliðið gerði klaufaleg mistök og þeim var refsað fyrir það.
Bestu leikmenn
1. María Marín Asensio (ÍR)
Alltaf einhver hætta í kringum hana. Hún skoraði flott mark sem kom ÍR á bragðið.
2. Linda Eshun (ÍR)
Frábær á miðsvæðinu, yfirveguð og góð á boltanum. ÍR hefur spilað frábærlega eftir að hún kom til félagsins.
Atvikið
Fyrsta markið í leiknum sem ÍR skoraði. Klaufagangur hjá Fjölni sem breytti leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR var búið að tryggja sér sigur í deildinni fyrir leikinn en þær sýndu mikinn karakter með því að mæta í þennan leik og spila svona vel. Ír endaði á botni 2. deildar árið 2020 en síðustu ár hefur verið flott uppbygging í Breiðholti sem hefur skilað því að liðið fer núna upp. Fjölnir á ekki lengur möguleika á því að komast upp eftir þetta tap.
Vondur dagur
Þetta er vondur dagur fyrir Fjölni í heild sinni, það eru mikil vonbrigði að liðið komist ekki upp. Varnarleikur liðsins var þá ekki sannfærandi.
Dómarinn - 7
Fjölnir vildi fá víti í fyrri hálfleiknum en ég sá það ekki nægilega vel til að dæma um það. Ágætis frammistaða hjá Magga Bö og hans teymi frá mínu sjónarhorni.



