Fotbolti.net
@dani_darriDaníel Darri Arnarsson
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Það er skýjað og 10 gráður hérna í efra breiðholti
Leiknir R.
Leiknir R.
1 - 2
Fjölnir
Fjölnir
0 - 117' Sigurvin ReynissonDavíð Júlían Jónsson 34'1 - 11 - 243' Axel Freyr Harðarson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Fjölnir fóru í efra-Breiðholt og tóku 3 stig

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög skrítinn leikur eða mikið að færum sem að hvorugt liðið nýtti ekki nógu vel og endar með að Fjölnir skora úr 2 föstum leikatriðum þó mark Axels hafi verið frábært hafði ég viljað sjá fleiri mörk hjá báðum liðum.

Bestu leikmenn

1. Patryk Hryniewicki, Leiknir R.

Svakalega erfitt fannst mér að finna einhvern einn sérstakan leikmann þar sem þetta var bara mikið um 50/50 bolta en ætla gefa Patryk það að hann bjargaði einu sinni svakalega á línu og varðist frábærlega inn á milli. Lítið sem hann gat gert í báðum föstu leikatriðunum hjá Fjölni þannig ætla gefa honum þetta.

2. Axel Freyr Harðarson, Fjölnir

Axel skoraði náttúrlega þetta gullfallega mark og var svakalega duglegur sóknar sem varnarlega, fáir leikmenn jafn duglegir og hann að pressa og keyra á menn.

Atvikið

Ætla hreinlega segja mark Axel Freys sem ég myndi mæla með fólki að fara á Youtube og chekka á því marki alvöru þruma fyrir utan teig!

Hvað þýða úrslitin?

Enginn breyting hjá þessum liðum þar sem Fjölnir sitja en í 3.sæti með 39 stig og leiknir en í 5.sæti með 32 stig bæði þessi lið eru örugg í "playoffs".

Vondur dagur

Færanýting beggja liða fannst mér þar sem sóknarmenn beggja liða náður hreinlega bara ekki að sitja hann inn frá opnum leik, Omar Sowe var mjög ólíkur sjálfum sér í dag lítið í gangi hjá honum og Bjarni Gunnars markahæsti maður Fjölnis. Hefði viljað sjá hreinlega bara fleiri mörk.

Dómarinn - 7

Gunnar fannst mér bara gera allt vel og á bara skilið hina basic sjöu, öll spjöld on point og engar svakalega stórar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.