Fotbolti.net
@fotboltinetJón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Þurrt, 7 gr. 7 m/sek
Vestri
Vestri
2 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 148' Steven LennonMikkel Elbæk Jakobsen 50'1 - 1Baldur Hannes Stefánsson (sjm) 75'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Vestri tryggja fjórða sætið

Hvað réði úrslitum?

Hin sífellda ógn af Benedikt Warén á vinstri kantinum hjá Vestra tryggði sigurinn í dag. Átti sendingarnar í báðum mörkunum. Leikurinn var í járnum eftir að Vestri jafnaði og gat dottið hvoru megin sem er en markið datt hjá heimamönnum.

Bestu leikmenn

1. Benedikt Warén

Auðvelt að velja mann leiksins þessa dagana hjá Vestra. Hann er fullur sjálfstraust og skapar svo gríðarlega mikið í hverjum leik. Bjó til bæði mörkin í dag.

2. Fatai Gbadamosi

Aftastur á miðju Vestra og er svo góður að vinna bolta, loka svæðum og losa sig sem kostur í uppspili. Týpískur leikur hjá Fatai sem hefur átt frábært sumar.

Atvikið

Sjálfsmarkið korteri fyrir leikslok. Ekki mörg færi eftir að Vestri jöfnuðu og ég gat allt eins séð Þrótt læða inn sigurmarki. Óheppilegt fyrir Baldur en erfið sending að eiga við frá Benedikt.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri munu næsta örugglega enda í fjórða sæti. Leiknir geta ekki lengur náð þeim og markatala Fjölnis er það sterk að þeir ná Grafarvogsbúum ekki. Þróttarar sælir með úrslit í öðrum leikjum í dag en eru enn í bráðri fallhættu. Ekki hjálpar þeim að lokastaða Fjölnis og Vestra er nánast tryggð en þau mæta andstæðingum Þróttar í fallbaráttunni. Afturelding þarf að vinna sinn leik og mæta í Laugardalinn í lokaleiknum.

Vondur dagur

Baldur Hannes var ekki slakur í dag en það er alltaf vondur dagur að lenda í því að skora sjálfsmark sem verður sigurmark leiksins.

Dómarinn - 7

Fínn bara. Eitt og eitt til að tuða yfir en engar stórar ákvarðanir sem hann þurfti að taka og þetta fékk að fljóta nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.