Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
Rafholtsvöllurinn
Njarðvík
Njarðvík
2 - 4
ÍA
ÍA
0 - 17' Árni Salvar Heimisson0 - 213' Hlynur Sævar JónssonRafael Alexandre Romao Victor 40'1 - 21 - 346' Breki Þór Hermannsson1 - 481' Steinar Þorsteinsson Oliver James Kelaart Torres 83'2 - 4
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Skagamenn stigu risa skref í átt að Bestu deildinni

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn voru klínískari en Njarðvíkingar og nýttu færin sín bara mun betur. Njarðvíkingar fengu færi en fóru oft illa með þau á meðan Skagamenn nýttu sín færi vel og sýndu bara gæði sín.

Bestu leikmenn

1. Johannes Vall

Var frábær í liði Skagamanna í dag og eins og rennilás upp og niður völlinn. Átti tvær frábærar stoðsendingar og var allt í öllu.

2. Arnór Smárason

Var flottur í baráttunni á miðjunni og fyrirliðin leiddi liðið vel. Enginn sem skaraði endilega fram úr en í þessari stöðu sem Skagamenn eru í þá er gott að eiga svona ás í ermi til að halda mönnum við efnið á vellinum.

Atvikið

Fyrstu 12 sekúndurnar í síðari hálfleik drápu alla von Njarðvíkingar um að fá eitthvað úr þessum leik. Enduðu fyrri hálfleikinn vel en náðu enganveginn að nýta það momentum sem þeir höfðu undir lok fyrri hálfleiksins með sér í upphafi síðari.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA þarf bara stig úr lokaumferðinni til þess að sigra Lengjudeildina og tryggja sér beint upp í Bestu deildina. Njarðvíkingar hanga á síðasta örugga sætinu á markatölu og verða að sækja amk stig til þess að tryggja veru sína í deildinni að ári eða treysta á úrslit í öðrum leikjum.

Vondur dagur

Einbeitning Njarðvíkurliðsins varnarlega átti ekki góðan dag. Oliver Kelaart átti ekkert sérstakan dag framan af en vann sig vel inn í leikinn.

Dómarinn - 7

Solid 7-a frá teyminu í dag. Flestar ákvarðarnir góðar og spot on.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.