SKÝRSLAN: Grindavík loks öruggt
Hvað réði úrslitum?
Sú staðreynd að á einu augnabliki í leiknum voru leikmenn Grindavíkur fljótir að hugsa og refsuðu Selfyssingum fyrir sofandahátt í öftustu línu. Það skildi á milli í dag í leik sem að öðru leyti skilur lítið eftir sig.
Bestu leikmenn
1. Sigurjón Rúnarsson
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig skrautlegt mark stóð Sigurjón fyrir sínu í vörninni. Stöðvaði ófáar sóknir í leiknum og átti heilt yfir ágætis dag.
2. Óskar Örn Hauksson
Fær þetta fyrir að vera "game changer" poppar upp á réttu augnabliki og tryggir sínu liði sigur í dag.
Atvikið
Jöfnunarmark Selfoss 1-1 var skrautlegt. Dapur varnarleikur þegar löng aukaspyrna inn á teiginn fær að skoppa í markteignum fyrir fætur Þorsteins Arons sem á skot sem bjargað er á línu. þaðan hrekkur boltinn á Aron Fannar sem nær að moka boltanum yfir línuna af svona 10 sentimetra færi. Sérstakur varnarleikur í meira lagi og eiginlega stóð upp úr mér í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Grindavík fer í 28 stig og situr í sjötta sæti deildarinnar öruggir með sæti sitt í henni að ári. Selfoss aftur á móti í ellefta sæti með 23 stig líkt og Þróttur og Njarðvík og þarf að sækja stig gegn Vestra í lokaumferðinni og treysta á að annaðhvort Njarðvík eða Þróttur geri það ekki.
Vondur dagur
Aftasta lína Selfoss fyrir að vera steinsofandi í sigurmarki Grindavíkur. Óskar fær að taka hlaup inn á teiginn algjörlega óáreittur og þakkar pent fyrir sig er hann fær boltann í fætur aleinn í markteignum og skorar. Rándýrt.
Dómarinn - 8
Pétur var með góða stjórn á þessum leik. Valdi réttu augnablikin til að lyfta spjöldum og gerði sitt vel.


