Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild kvenna
Vivaldivöllurinn
Sól með smá roki.
Grótta
Grótta
2 - 3
Fylkir
Fylkir
Arnfríður Auður Arnarsdóttir 23'1 - 01 - 154' Tinna Harðardóttir1 - 261' Erna Sólveig SverrisdóttirRebekka Sif Brynjarsdóttir 73'2 - 22 - 384' Guðrún Karítas Sigurðardóttir
Dómari: Magnús Þór Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Fylkir trygðu sér sæti í Bestu deild eftir spennandi úrslitaleik

Hvað réði úrslitum?

Grótta voru betri í fyrri hálfleik og gátu þær alveg hafa getað verið komnar fleiri mörkum yfir í fyrri hálfleik. Fylkir hóf þó seinni hálfleikinn með miklum krafti og tóku alveg yfir leiknum. Grótta náði þó að jafna eftir að Fylkir skoraði tvö á stuttu millibili, en mark frá Guðrúnu trygði svo Fylkir sæti í Bestu deild, en slökktu alveg á von Gróttu um sætið.

Bestu leikmenn

1. Tinna Harðardóttir

Tinna átti flottan leik í dag. Hún var með mikið presence í leiknum og skoraði jöfnunarmark og fyrsta mark Fylkis í leiknum.

2. Tinna Brá Magnúsdóttir

Önnur Tinna sem er valinn best í þessum leik, en markvörður Fylkis átti frábæran leik í dag og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Grótta átti góðan fyrri hálfleik, en ef það hefði ekki verið fyrir Tinnu í markinu, hefði Grótta átt stærri forskot þegar farið var inn í klefann.

Atvikið

Það varð mikil spenna eftir að Grótta nær að jafna leikinn 2-2. Þá þurfti Grótta aðeins 1 mark í viðbót til þess að komast upp í Bestu deild. En á meðan var Fylkir að leita af marki til þess að tryggja sér 2. sæti deildarinnar.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir tryggja sér sæti í Bestu deild kvenna næst sumar og enda tímabilið í 2. sæti með 38 stig í 18 leikjum. Með tapi í dag þá mun Grótta spila í Lengjudeildinni í næsta sumar og enda tímabilið í 4. sæti deildarinnar með 33 stig í 18 leikjum.

Vondur dagur

Cornelia var fín í leiknum, en í tvem af mörkum Fylkis stóð hún of langt frá línunni sem endaði með að boltinn fór yfir hana og inn í markið. Erfitt að kenna henni um seinasta markið, en í öðru marki Fylkis ætlar hún að reyna handsama botlann, en þá nær Erna að skalla boltanum yfir Corneliu og inn í markið. Bæði liðin fengu líka mörg færi sem voru ekki nýtt nógu vel af framherjum liðana.

Dómarinn - 7

Þetta var vel dæmdur leikur hjá Magnúsi og hans teymi. Ég tók samt eftir að stundum var ekki alltaf lögð sama lína við brot. Í byrjun var dæmt brot á hrindingu við skalla bolta, en svo stuttu eftir var ekki dæmt fyrir sama brotið. Annars var góð flæði í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.