Leik lokið!
Keflavík sigrar í Mosfellsbænum!
95. mín
Samstuð milli Jökuls og Vals. Valur liggur eftir og þarfnast aðhlynningar.
Leikurinn hafin á ný og virðist sem Valur geti haldið leik áfram.
Leikurinn hafin á ný og virðist sem Valur geti haldið leik áfram.
93. mín
Keflavik að ganga frá þessu!!
Valur Þór Hákonarson
Heimamenn verið að sækja stanslaust síðustu mínútur. Keflavík þýst af stað í skyndisókn. Boltinn berst inn á teiginn og Valur hrifsar hann til sín. Klárar færið vel. Keflvíkingar taka tveggja marka forystu!92. mín
Kemur fyrirgjöf inn á teig Keflvíkinga. Boltinn of innarlega og Ásgeir handsamar knöttinn.
91. mín
Það eru sjö mínútur í uppbótartíma
91. mín
Afrturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað!
Keflavík hreinsar.
Keflavík hreinsar.
90. mín
Gult spjald
Kári Sigfússon
87. mín
InnRúnar Ingi Eysteinsson
ÚtMihael Mladen
Keflvíkingar gera tvöfalda skiptingu fyrir lokamínúturnar.
87. mín
InnGuðjón Pétur Stefánsson
ÚtFrans Elvarsson
83. mín
Afturelding minnkar munin! Boltinn kemur inn á teiginn og boltinn flakkar á milli manna. Að lokum er það Georg sem nær boltanum og smellir honum í netið. Við erum komin með leik!
Þeir minnka munin!!!!
Georg Bjarnason
MAAAARK!!Afturelding minnkar munin! Boltinn kemur inn á teiginn og boltinn flakkar á milli manna. Að lokum er það Georg sem nær boltanum og smellir honum í netið. Við erum komin með leik!
83. mín
Afturelding að vinna aukaspyrnu á vænlegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.
81. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtAron Jóhannsson
80. mín
Færi!
Andri Freyr með hellinga af plássi inn á teig gestannaæ Aðeins of lengi að koma skotinu frá sér og boltinn hafnar í varnarmanni.
79. mín
Heimamenn verið afgerandi sóknharðari í þessum seinni hálfleik. Verið meira með boltann og komið sér í nokkur færi. Keflavík varið forystuna sína vel.
75. mín
Sláin!!
Hrannar með góðan bolta inn á teig gestanna og er það Andri Freyr sem hoppar hæst. Hann nær skalla og stangar hann í átt að marki en boltinn hafnar í sláni!
74. mín
Skyndisókn!
Gestirnir sækja hratt. Mihael Mkladen kemur sér í skotfæri en skotið hafnar í varnarmanni.
71. mín
Michael Malden kemur boltanum í net Aftureldingar eftir laglega sókn en flaggið fer á loft.
69. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtBjartur Bjarmi Barkarson
68. mín
Gult spjald
Bjartur Bjarmi Barkarson
66. mín
Dauðafæri!!
Afturelding sækir hratt! kemst í góða stöðu og Oliver gefur boltan inn á teiginn. Góð fyrirgjöf og á Andri Freyr skalla framhjá af mjög stuttu færi.
64. mín
InnAndri Freyr Jónasson
ÚtPatrekur Orri Guðjónsson
64. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtSami Kamel
62. mín
Færi!
Vel unnin sókn hjá Aftureldingu! Boltinn kemur inn á teigin og á Aron Jóhanns marktilraun rétt fyrir utan teig. Fast skot en boltinn framhjá.
59. mín
Afturelding fær horn.
Ekkert verður úr því.
Ekkert verður úr því.
57. mín
InnKári Sigfússon
ÚtEdon Osmani
55. mín
Edon Osmani höltrar og sparkar boltanum út af. Fær aðhlynningu, vonandi ekkert alvarlegt.
Virðist sem Edon sé að koma út af
Virðist sem Edon sé að koma út af
49. mín
Hrannar Snær á skot fyrir utan teig. Skýtur meðfram jörðinni en boltinn framhjá.
48. mín
Aron Elí á gott hlaup upp vinstri kantinn og kemur boltnaum inn á teig Keflvíkinga en gestirnir hreinsa.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Það eru heimamenn sem rúlla seinni hálfleiknum í gang.
45. mín
Hálfleikur í Mosfellsbænum!
Keflavík leiðir með tveimur mörkum gegn engum þegar liðin ganga til búningsherbergja!
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
45. mín
+1
Kemur hættulegur bolti inn á teig Keflvíkinga frá Georgi. Boltinn á hárréttan stað milli varnarlínu og markmanns en enginn nær til hanns.
45. mín
Uppgefinn uppbótartími fyrri hálfleiks er 3 mínútur.
43. mín
Vel varið!
Hrannar komin inn á teig gestana og kemur sér í skotfæri. Á bylmingsfast skot á mark en vel varið hjá Ásgeiri sem blakar boltanum í horn.
40. mín
Afturelding að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.
Keflavíik hreinsar.
Keflavíik hreinsar.
35. mín
Þetta var klaufalegt. Keflavík að sækja og Mihael með boltann inn á teig heimamanna. Með nokkra varnarmenn í kringum sig en hann lætur vaða. Skýtur í átt að marki en boltinn skoppar af varnarmanni yfir Jökul og í markið. Keflavík tvöfaldar forystuna!
MAAARK!!!
Mihael Mladen
Keflvíkingar komnir tveimur mörkum yfir!Þetta var klaufalegt. Keflavík að sækja og Mihael með boltann inn á teig heimamanna. Með nokkra varnarmenn í kringum sig en hann lætur vaða. Skýtur í átt að marki en boltinn skoppar af varnarmanni yfir Jökul og í markið. Keflavík tvöfaldar forystuna!
32. mín
Sami Kamel með skot fyri utan teig en boltinn laaangt framhjá markinu.
29. mín
Aron Jóns á þéttingfast skot meðfram jörðinni. Gott uppspil hjá heimamönnum en boltinn framhjá markinu.
27. mín
Afturelding fær hornspyrnu.
Aron kemur með hættuelgan bolta fyrir en Keflvíkingar hreinsa.
Aron kemur með hættuelgan bolta fyrir en Keflvíkingar hreinsa.
25. mín
Leikurinn stöðvaður. Elmar Kári liggur eftir höfuðhögg og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.
Leikurinn hafinn á ný og virðist sem Elmar geti haldið leik áfram.
Leikurinn hafinn á ný og virðist sem Elmar geti haldið leik áfram.
23. mín
Hætta!
Kemur hættulegur bolti inn á teig Aftureldingar. Mihael Mladen í honum en nær ekki að stýra boltanum á markið,
19. mín
Langskot!
Aron Jóns fær boltann rétt fyrir utan D-bogann. Á fast skot en boltinn yfir markið.
16. mín
Gult spjald
Elmar Kári Enesson Cogic
14. mín
Kemur eftir horn. Kemur fastur bolti meðfram jörðinni inn á teiginn og þar er Edon á réttum stað og klárar vel. Óverjandi fyrir Jökul í markinu. Keflvíkingar komnir yfir!
Keflavík tekur forystuna!!
Edon Osmani
MAAAARK!!Kemur eftir horn. Kemur fastur bolti meðfram jörðinni inn á teiginn og þar er Edon á réttum stað og klárar vel. Óverjandi fyrir Jökul í markinu. Keflvíkingar komnir yfir!
11. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Boltinn kemur inn á teiginn en vel gert hjá Ásgeiri í markinun sem grípur.
10. mín
Gult spjald
Axel Ingi Jóhannesson
Gróft brot. Réttur dómur.8. mín
Skot á mark!
Góð sókn hjá heimamönnum. Boltinn berst á Elmar rét fyrir utan teiginn. Hann á skot meðfram jörðinni. Fer af varnarmanni og í lúkurnar á Ásgeiri.
4. mín
Keflavík að fá aukaspyrnu á vænlegum stað.
Sami Kamel á skot í vegginn.
Sami Kamel á skot í vegginn.
3. mín
Yfir!
Sami Kamel á skot rétt yfir markið. Fær boltann á miðjum teignum en setur hann yfir.
1. mín
Þetta er komið í gang!
Það eru Keflvíkingar sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Þá ganga leikmenn inn á völlinn. Styttist í upphafsflautið!
Fyrir leik
Spámaðurinn!
Úlfur Ágúst Björnsson, sóknarmaður FH, er spámaður umferðarinnar! Hann spáir Aftureldingu sigri í kvöld.
Afturelding 2 - 0 Keflavík
Afturelding tekur þennan leik 2-0. Jökull mættur í búrið og lokar því. Aron Jó og Elmar taka svo markaskorunina að sér.

Afturelding 2 - 0 Keflavík
Afturelding tekur þennan leik 2-0. Jökull mættur í búrið og lokar því. Aron Jó og Elmar taka svo markaskorunina að sér.
25.07.2024 14:34
Úlfur Ágúst spáir í 14. umferð Lengjudeildarinnar

Fyrir leik
Staðan í deildinni!
Deildin er afar spenanndi og eru fá stig sem skilja liðin að!
1.Fjölnir - 30 stig
2.Njarðvík - 24 stig
3.ÍBV - 22 stig
4.ÍR - 19 stig
5.Þróttur - 18 stig
6.Keflavík - 18 stig
7.Þór Ak. - 17 stig
8.Grindavík - 17 stig
9.Afturelding - 17 stig
10.Leiknir R. - 12 stig
11.Grótta - 10 stig
12.Dalvík/Reynir - 8 stig

1.Fjölnir - 30 stig
2.Njarðvík - 24 stig
3.ÍBV - 22 stig
4.ÍR - 19 stig
5.Þróttur - 18 stig
6.Keflavík - 18 stig
7.Þór Ak. - 17 stig
8.Grindavík - 17 stig
9.Afturelding - 17 stig
10.Leiknir R. - 12 stig
11.Grótta - 10 stig
12.Dalvík/Reynir - 8 stig

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Freyr Róbertsson verður á flautunni hér í kvöld og verða þeir Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Nour Natan Ninir sem verða honum til aðstoðar. Eftirlitsmaður er Frosti Viðar Gunnarsson

Gunnar Freyr mun dæma leikinn hér í kvöld.

Gunnar Freyr mun dæma leikinn hér í kvöld.
Fyrir leik
Keflavík hafði betur fyrr í sumar
Liðin mættust á HS Orku vellinum fyrr í sumar og voru það Keflvíkingar sem báru sigur úr býtum. Keflavík vann 3-0 en Afturelding var manni færri frá því á 28. mínútu er Arnar Daði Jóhannesson var rekinn af velli. Mörk Keflavíkur skoruðu Sami Kamel og Valur Þór Hákonarson.


Fyrir leik
Jökull kominn til Aftureldingar
Markvörðurinn Jökull Andrésson er kominn til Aftureldingar á láni frá Reading á Englandi en þangað fór hann frá Aftureldingu árið 2017. Jökull verður 23 ára eftir rúman mánuð en hann á að baki einn A-landsleik og sjö leiki fyrir yngri landsliðin.

19.07.2024 16:21
Jökull í Aftureldingu (Staðfest) - „Ótrúlega spenntur"

Fyrir leik
Gengi liðanna!
Afturelding er fyrir leikinn í 9. sæti deildarinnar með 17 stig. Afutrelding mætti Gróttu á Vivaldi vellinum í síðustu umferð og sigraði þar sannfærandi 4-1. Eitt stig skilur Aftureldingu og Keflavík að fyrir kvöldið.

Keflvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar með 18 stig fyrir leikinn í kvöld. Keflavík mætti ÍR-ingum í Breiðholtinu í síðustu umferð. Keflavík vann 1-0 eftir að hafa komist yfir eftir sex mínútna leik.


Keflvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar með 18 stig fyrir leikinn í kvöld. Keflavík mætti ÍR-ingum í Breiðholtinu í síðustu umferð. Keflavík vann 1-0 eftir að hafa komist yfir eftir sex mínútna leik.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Góða kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Aftureldingar og Keflavíkur. Leikurinn fer fram í Mosfellsbænum og hefst kl. 19:15!







Skýrsla og viðtöl væntanleg.