Zinchenko og franskur vængmaður til Forest (Staðfest)
Nottingham Forest vann mjög hröðum höndum undir lok félagaskiptagluggans en félagið nældi í Oleksandr Zinchenko á láni frá Arsenal á síðustu stundu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25096 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Nottingham Forest vann mjög hröðum höndum undir lok félagaskiptagluggans en félagið nældi í Oleksandr Zinchenko á láni frá Arsenal á síðustu stundu.
Nicolas Jackson er genginn ti liðs við Bayern Munchen frá Chelsea. Hann fer á lán út tímabilið en Bayern mun síðan festa kaup á honum. Jackson er 24 ára gamall landsliðsmaður Senegal. Hann mun klæðast treyju númer 11 hjá Bayern. Bayern borgar rúmlega 70 milljónir punda í heildina samkvæmt Sky Sports.
Manchester United hefur staðfest kaupin á Senne Lammens, markverði Antwerp. Lammens er 23 ára gamall en Man Utd borgar rúmlega 18 milljónir punda fyrir hann.
Aston Villa hefur nælt í Harvey Elliott á láni frá Liverpool. Villa mun festa kaup á honum fyrir 35 milljónir punda eftir tímabilið. Liverpool getur keypt hann til baka fyrir ákveðna upphæð og þá fær Liverpool einnig ákveðna upphæð ef Aston Villa selur hann annað síðar.
Yoane Wissa er genginn til liðs við Newcastle frá Brentford. Newcastle greinir frá þessu í kjölfar sölunnar á Alexander Isak til Liverpool. Newcastle borgar 55 milljónir punda fyrir hann. Wissa skrifar undir fjögurra ára samning.
Aston Villa hefur fengið Jadon Sancho á láni frá Man Utd út tímabilið. Aston Villa borgar óuppgefna upphæð til Man Utd og borgar 80 prósent af laununum hans samkvæmt heimildum Sky Sports.
Alexander Isak er genginn til liðs við Liverpool frá Newcastle. Liverpool borgar 125 milljónir punda fyrir hann en það gerir hann að dýrasta leikmanni úrvalsdeildarinnar. Liverpool bætti metið fyrr í þessum glugga þegar Florian Wirtz var keyptur til liðsins frá Leverkusen fyrir 116 milljónir punda.
Samuel Chukwueze er genginn til liðs við Fulham frá AC Milan. Fulham fær hann á láni út tímabilið með kaupmöguleika. Hann er 26 ára gamall vængmaður. Hann er nígerískur landsliðsmaður en hann hittir landsliðsfélaga sína Alex Iwobi og Calvin Bassey hjá Fulham. Hann mun klæðast treyju númer 19.
Pólski varnarmaðurinn Jakub Kiwior er genginn til liðs við Porto frá Arsenal. Um lánssamning er að ræða en Porto mun festa kaup á honum fyrir 24 milljónir punda eftir tímabilið.
Franski framherjinn Randall Kolo Muani er genginn til liðs við Tottenham á láni frá PSG.
Arsenal hefur staðfest kaup á Piero Hincapie, varnarmanni Leverkusen. Hann kemur til liðsins á láni út tímabilið. Arsenal hefur síðan tækifæri á að kaupa hann fyrir 45 milljónir punda.
Rúnar Þór Sigurgeirsson er genginn til liðs við danska liðið Sonderjyske frá hollenska liðinu Willem II. Samningi hans við Willem II var rift svo hann fer til Sonderjyske á frjálsri sölu. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.
Man Utd hefur lánað varnarmanninn unga Harry Amass til Sheffield Wednesday út tímabilið. Amass er 18 ára vinstri bakvörður en hann kom við sögu í fimm leikjum með Man Utd á síðustu leiktíð.
RC Lens hefur fest kaup á franska sóknarmanninum Odsonne Edouard frá Crystal Palace.
Crystal Palace hefur nælt í miðvörðinn Jaydee Canvot frá Toulouse í Frakklandi fyrir rúmlega 20 milljónir punda.
Bakvörðurinn reynslumikli Charlie Taylor er genginn til liðs við West Bromwich Albion að láni út tímabilið frá Southampton.
Real Betis hefur fest kaup á Antony, vængmanni Man Utd. Kaupverðið er um 22 milljónir punda. Man Utd fær um helming af næstu sölu. Antony þekkir vel til í Betis en hann var á láni hjá félaginu seinni hluta síðasta tímabils.
Rasmus Höjlund er genginn til liðs við Napoli á láni frá Manchester United út tímabilið. Napoli borgar um 5 milljónir punda til að fá hann á láni. Hann mun ganga alfarið til liðs við ítalska liðsins fyrir 43 milljónir punda en Napoli tekst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, hefur lagt skóna á hilluna.
Fulham hefur gengið frá sölunni á enska vængmanninum Martial Godo til Strasbourg.