FRÉTTIR28.08.2025, 11:00
Varnarmaðurinn Ladislav Krejcí er genginn í raðir Wolves frá Girona. Þessi 26 ára miðvörður, sem getur einnig leikið á miðjunni, kemur á lánssamningi en samningur til 2030 verður varanlegur þegar ákveðin skilyrði verða uppfyllt.
Krejcí er tékkneskur landsliðsmaður og er fyrsti tékkneski leikmaðurinn í sögu Wolves. Hann lék eitt tímabil með Girona og spilaði 25 leiki í öllum keppnum þegar liðið hafnaði í sextánda sæti í La Liga.
Þar áður var hann fimm ár hjá Spörtu í Prag þar sem hann vann tvo deildarmeistaratitla.
<i>„Ég er virkilega spenntur. Enska úrvalsdeildin er besta deild heims. Þetta er mikið afrek fyrir mig. Mín fyrstu kynni af félaginu hafa verið stórkostleg,"</I> segir Krejcí.
Úlfarnir hafa fyrr í sumar fengið baverðina Jackson Tchatchoua og David Möller Wolfe ásamt sóknarleikmönnunum Fer Lopez og Jhon Arias. Úlfarnir hafa tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark.
FRÉTTIR27.08.2025, 12:00
Chelsea hefur lánað argentínska varnarmanninn Aaron Anselmino til Borussia Dortmund.
Hann mun leika út núverandi tímabil í Þýskalandi með Dortmund.
FRÉTTIR27.08.2025, 09:30
Enski sóknarmaðurinn Danny Ings er búinn að skrifa undir samning við Sheffield United.
Ings hefur verið að æfa með Sheffield United að undanförnu en hann skrifar undir eins árs samning við félagið
FRÉTTIR27.08.2025, 06:00
Matheus Franca er genginn til liðs við Vasco da Gama á láni frá Crystal Palace út tímabilið.
Franca er 21 árs gamall sóknarsinnaður miðjumaður. Hann gekk til liðs við félagið frá Flamengo árið 2023 fyrir 26 milljónir punda.
FRÉTTIR26.08.2025, 15:30
Bayer Leverkusen krækti í dag í spænska bakvörðinn Lucas Vazquez. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Real Madrid og skrifar undir tveggja ára samning við Leverkusen.
Vazquez hefur verið á mála hjá Real síðan 2007 þegar hann kom inn í unglingaliðið. Hann fór í gegnum C- og B-lið Real Madrid og var á láni hjá Espanyol áður en hann kom inn í aðalliðshópinn, þá orðinn 24 ára gamall.
Vazquez, sem er 34 ára Spánverji, getur bæði spilað bakvörð og á kantinum. Hann vann spænsku deildina fjórum sinnum með Real og Meistaradeildina fimm sinum.
Hann á að fylla í skarðið sem Jeremie Frimpong skildi eftir með félagaskiptum sínum til Liverpool í sumar og mun berjast við Arthur frá Brasilíu um sæti í byrjunarliðinu.
FRÉTTIR26.08.2025, 14:56
Nemanja Matic, fyrrum leikmaður Manchester United og Chelsea, er genginn í raðir ítalska félagsins Sassuolo.
Hann kemur á frjálsri sölu frá Lyon þar sem samningi hans var rift á dögunum.
Hann er 37 ára serbneskur miðjumaður sem hefur einnig spilað með Benfica, Rennes og Roma á sínum ferli.
FRÉTTIR26.08.2025, 14:00
Chelsea hefur staðfest að miðjumaðurinn Carney Chukwuemeka sé kominn til þýska félagsins Borussia Dortmund á samningi til 2030.
Þessi 21 árs gamli leikmaður var seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Dortmund.
Chukwuemeka lék aðeins 32 leiki fyrir Chelsea eftir að hann kom til félagsins frá Aston Villa 2022 en hann skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu.
FRÉTTIR25.08.2025, 19:15
Everton er búið að festa kaup á kantmanninum efnilega Tyler Dibling sem kemur úr röðum Southampton fyrir 42 milljónir punda.
FRÉTTIR25.08.2025, 18:05
Leeds United er búið að ganga frá kaupum á bakverðinum James Justin sem kemur úr röðum Leicester City.
FRÉTTIR25.08.2025, 14:19
Albanski landsliðsmaðurinn Kristjan Asllani er kominn til Torino frá Inter.
Þessi miðjumaður sem fæddur er 2002 fer á láni út tímabilið en Torino er með ákvæði um að geta keypt hann.
Inter mætir Torino í kvöld en Asllani mun ekki spila þann leik.
FRÉTTIR25.08.2025, 12:39
Horsens í Danmörku hefur staðfest að Guðlaugur Victor Pálsson sé genginn í raðir félagsins.
Guðlaugur Victor rifti í gær samningi sínum við enska félagið Plymouth.
FRÉTTIR24.08.2025, 15:00
Portúgalski miðjumaðurinn Renato Sanches er mættur til Panathinaikos á láni frá Paris Saint-Germain í Frakklandi, en þessi skipta þykja vera stór yfirlýsing hjá gríska félaginu.
FRÉTTIR24.08.2025, 13:18
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur rift samningi sínum við enska félagið Plymouth Argyle, en hann er á leið til danska félagsins Horsens. Hann kveður Plymouth á heimasíðu félagsins í dag.
FRÉTTIR24.08.2025, 12:31
Kristján Guðmundsson er tekinn við kvennaliði Damaiense í Portúgal, en samningur hans gildir næstu tvö tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
FRÉTTIR24.08.2025, 12:30
Franska félagið Marseille hefur staðfest söluna á enska vængmanninum Jonathan Rowe eftir að hann slóst við Adrien Rabiot eftir leik liðsins við Rennes í 1. umferð frönsku deildarinnar.
FRÉTTIR23.08.2025, 16:21
Enska félagið Arsenal hefur staðfest kaupin á Eberechi Eze en hann kemur frá Crystal Palace fyrir 67,5 milljónir punda.
FRÉTTIR23.08.2025, 11:03
Mexíkóski miðjumaðurinn Edson Alvarez er mættur til Fenerbahce á láni frá West Ham út tímabilið.
FRÉTTIR23.08.2025, 09:00
Franski miðjumaðurinn Andy Diouf er genginn til liðs við Inter frá Lens. Kaupverðið er 25 milljónir evra.
Hann skrifar undir fimm ára samning við ítalska félagið.
FRÉTTIR23.08.2025, 08:00
Birmingham hefur fengið Lewis Koumas á láni frá Liverpool út tímabilið.
Koumas er 19 ára gamall vængmaður en hann á sex landsleiki að baki fyrir landslið Wales.
FRÉTTIR23.08.2025, 06:00
Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni með stórsigri á Völsungi á Húsavík í gær.
Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði þrennu og Sara Rún Auðunsdóttir og Björgey Njála Andreudóttir skoruðu sitt markið hver í 5-0 sigri.
Selfoss er með 40 stig á toppnum, 13 stigum á undan Völsungi sem er í 3. sæti þegar níu stig eru eftir í pottinum.
ÍH er fimm stigum á eftir Selfossi eftir stórsigur á Fjölni en ALma Mathiesen skoraði þrennu í 7-2 sigri.