Fotbolti.net
28.08.25 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Krejcí orðinn úlfur (Staðfest) - Fyrsti Tékkinn í sögu félagsins

Ladislav Krejcí á Molineux leikvangnum.

Ladislav Krejcí á Molineux leikvangnum.

Canon

Mynd: Wolves

Varnarmaðurinn Ladislav Krejcí er genginn í raðir Wolves frá Girona. Þessi 26 ára miðvörður, sem getur einnig leikið á miðjunni, kemur á lánssamningi en samningur til 2030 verður varanlegur þegar ákveðin skilyrði verða uppfyllt.

Krejcí er tékkneskur landsliðsmaður og er fyrsti tékkneski leikmaðurinn í sögu Wolves. Hann lék eitt tímabil með Girona og spilaði 25 leiki í öllum keppnum þegar liðið hafnaði í sextánda sæti í La Liga.

Þar áður var hann fimm ár hjá Spörtu í Prag þar sem hann vann tvo deildarmeistaratitla.

„Ég er virkilega spenntur. Enska úrvalsdeildin er besta deild heims. Þetta er mikið afrek fyrir mig. Mín fyrstu kynni af félaginu hafa verið stórkostleg," segir Krejcí.

Úlfarnir hafa fyrr í sumar fengið baverðina Jackson Tchatchoua og David Möller Wolfe ásamt sóknarleikmönnunum Fer Lopez og Jhon Arias. Úlfarnir hafa tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark.
Krejcí í leik með Girona.

Krejcí í leik með Girona.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.