Enski sóknarmaðurinn Danny Ings er búinn að skrifa undir samning við Sheffield United.
Ings hefur verið að æfa með Sheffield United að undanförnu en hann skrifar undir eins árs samning við félagið
Ings hefur verið að æfa með Sheffield United að undanförnu en hann skrifar undir eins árs samning við félagið
Hinn 33 ára gamli Ings hefur verið án félags frá því hann yfirgaf West Ham fyrr í sumar. Samningur hans þar var ekki endurnýjaður.
„Ég hef verið að halda mér í góðu formi og beðið eftir rétta tækifærinu. Mér fannst þetta frábært tækifæri fyrir mig," segir Ings.
ngs er mjög reynslumikill leikmaður en hann hefur alls skorað 72 mörk í ensku úrvalsdeildinni með West Ham, Aston Villa, Southampton, Liverpool og Burnley.
Hann hefur þá spilað þrjá landsleiki fyrir England og skorað eitt mark. Einn af þessum landsleikjum var gegn Íslandi.
Sheffield United hefur farið illa af stað í ensku Championship-deildinni en liðið er án stiga eftir þrjá leiki. Það mun án efa styrkja liðið að ganga frá samningi við Ings.
Athugasemdir