FRÉTTIR01.06.2026, 10:53
Norska félagið Brann hefur tilkynnt á heimasíðu sinni að samstarfi félagsins og Freys Alexanderssonar, þjálfara liðsins, sé lokið.
Þar kemur fram að eftir samtal milli félagsins og Freys þá sé samkomulag um að samstarfinu ljúki samstundis. Freyr hefur verið þjálfari liðsins frá því í janúar í fyrra. Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik bikarsins.
En gengið í norsku deildinni í ár hefur verið dapurt og þess vegna er farið í breytingar. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og situr í 11. sæti deildarinnar eftir tólf leiki.
FRÉTTIR01.06.2026, 09:06
James Milner, leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, hefur lagt skóna á hilluna.
Milner, sem er fertugur, hóf ferilinn með Leeds fyrir rétt tæpum aldarfjórðungi, 2002. Hann lék síðast með Brighton en hann tilkynnti um ákvörðun sína á samfélagsmiðlum fyrr í morgun.
FRÉTTIR01.06.2026, 08:00
Brasilíski miðvörðurinn Dante hefur formlega tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu eftir frábæran feril. Þetta sagði hann í viðtali eftir að hafa hjálpað Nice að bjarga sér frá falli úr frönsku deildinni.
FRÉTTIR31.05.2026, 23:43
Varnarmaðurinn Ari Leifsson er farinn frá danska B-deildarliðinu Kolding en félagið staðfestir þetta á Instagram í dag.
FRÉTTIR31.05.2026, 16:21
Liverpool hefur staðfest að Ibrahima Konate muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Liverpool náði ekki samkomulagi við franska miðvörðinn um nýjan samning og því er þetta niðurstaðan.
FRÉTTIR31.05.2026, 08:00
ÍR tilkynnti í gær að Róbert Kolbeins Þórarinsson væri búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
Róbert er varnarmaður fæddur árið 2004. Hann spilaði síðast í háskólanum Eckerd College í Bandaríkjunum þaðan sem hann er nýútskrifaður.
FRÉTTIR31.05.2026, 07:00
Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks Hauka.
Gunnlaugur er fótboltaáhugafólki vel kunnur, bæði sem fótboltamaður og sem þjálfari. Hann hefur þjálfað Þrótt, Selfoss, Val, KA, HK, ÍA og Álftanes.
FRÉTTIR30.05.2026, 11:35
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að Arne Slot hafi verið látinn taka poka sinn.
FRÉTTIR29.05.2026, 20:12
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er genginn í raðir Barcelona frá Newcastle.
Barcelona náði samkomulagi við Newcastle um kaupverð upp á um 70 milljónir punda og félagið vann Bayern Munchen í baráttunni um enska sóknarmanninn.
FRÉTTIR29.05.2026, 17:18
KR hefur staðfest félagaskipti hins efnilega Fannars Heimissonar til Nordsjælland í Danmörku.
Hann skrifar undir þriggja ára samning við Nordsjælland.
FRÉTTIR29.05.2026, 14:14
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár. Fyrri samningur var í gildi út næsta tímabil.
Hann mun áfram gegna stöðu yfirmanns fótboltamála og þjálfara meistaraflokks karla.
FRÉTTIR28.05.2026, 18:10
Víkingur hefur samið við Sölva Stefánsson (2007) en hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Hann kemur til liðsins frá danska félaginu AGF. Hann gekk til liðs við AGF frá Víkingi árið 2023 en hann spilaði einn leik með Víkingi áður en hann fór út. Hann er að jafna sig eftir að hafa slitið krossband á síðasta ári.
FRÉTTIR28.05.2026, 07:00
Landsliðskonan Telma Ívarsdóttir er farin frá Inter og á leið aftur til Rangers í Skotlandi. Inter greinir frá þessu á <i>Instagram</i>.
FRÉTTIR27.05.2026, 22:15
Borja Iglesias, þjálfari Völsungs var sáttur með frammistöðu liðs síns eftir 1-0 tap í Kórnum gegn HK í kvöld.
FRÉTTIR27.05.2026, 19:21
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er á leið til Barcelona frá Newcastle United. Hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun og í kjölfarið skrifa undir langtímasamning.
FRÉTTIR27.05.2026, 18:48
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel hefur lagt hanskana á hilluna eftir farsælan feril en hann tilkynnti þetta í viðtali við <i>TV2</i>.
FRÉTTIR27.05.2026, 17:45
Nuno Espirito Santo verður áfram stjóri West Ham á næsta tímabili. Óvissa var um hvort að hann myndi halda áfram með liðið eftir að félagið féll úr úrvalsdeildinni á dögunum.
Í tilkynningu félagsins segir að sá portúgalski muni stýra liðinu áfram á næsta tímabili eftir að hafa fundað með forráðamönnum félagsins á mánudag eftir fallið. Báðir aðilar voru með uppsagnarákvæði í samningnum.
FRÉTTIR27.05.2026, 17:00
Ítalski þjálfarinn Maurizio Sarri heldur ekki áfram sem stjóri Lazio á næsta tímabili. Félagið tilkynnti um tíðindin fyrr í dag með dramatísku myndbandi.
FRÉTTIR27.05.2026, 06:00
Rangers hefur gengið frá samningi við fyrirliða Hearts, Lawrence Shankland.
Shankland, sem er 30 ára, hefur samþykkt persónuleg kjör og skrifar undir tveggja ára samning til sumarsins 2028, með möguleika á eins árs framlengingu til viðbótar.
FRÉTTIR25.05.2026, 19:30
Max Allegri hefur verið rekinn sem stjóri Milan eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni. íþróttastjórarnir Igli Tare og Geoffrey Moncada og framkvæmdastjórinn Giorgio Furlani voru einnig reknir.
Liðið tapaði gegn Cagliari í lokaumferðinni í gær og endaði í 5. sæti, stigi á eftir Como. Þetta er annað árið í röð sem liðinu mistekst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni.