Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 14:14
Kári Snorrason
Óskar Hrafn framlengir við KR til 2030 (Staðfest) - „Auðveldasta ákvörðun ferilsins“
Magnús Orri Marínarson, formaður fótboltadeildar KR, og Óskar Hrafn.
Magnús Orri Marínarson, formaður fótboltadeildar KR, og Óskar Hrafn.
Mynd: KR
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár. Fyrri samningur var í gildi út næsta tímabil.

Hann mun áfram gegna stöðu yfirmanns fótboltamála og þjálfara meistaraflokks karla.

„Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem KR hefur sýnt mér og að framlengja samninginn var auðveldasta ákvörðunin sem ég hef tekið á mínum starfsferli.

Það eru forréttindi að vakna á hverjum morgni og vinna að því að gera KR að betra félagi,“
er haft eftir Óskari í tilkynningu félagsins.

Óskar tók við KR í ágúst 2024. Liðið hefur byrjað tímabilið vel og er í öðru sæti deildarinnar eftir níu leiki.


Slapp
banner