Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 01. júní 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
42 ára gamall Dante leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Mynd: EPA
Brasilíski miðvörðurinn Dante hefur formlega tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu eftir frábæran feril. Þetta sagði hann í viðtali eftir að hafa hjálpað Nice að bjarga sér frá falli úr frönsku deildinni.

Dante, sem er 42 ára gamall, hefur átt farsælan feril út um alla Evrópu.

Hann gekk í raðir Lille árið 2004 frá Juventude í heimalandinu, en fann sig ekki almennilega þar. Hann spilaði með belgísku liðunum Charleroi og Standard Liege, en hann vann deildina og Ofurbikarinn með Liege sem seldi hann til Borussia Mönchengladbach árið 2009.

Þar lék hann í þrjú ár við góðan orðstír áður en kallið frá Bayern München kom. Á tíma hans hjá Bayern spilaði 133 leiki á þremur árum og vann allt sem hægt er að vinna. Á sama tíma spilaði hann 13 landsleiki með Brasilíu og skoraði tvö mörk.

Dante vann Álfukeppnina með Brössum, en landsliðsferill hans spannaði aðeins eitt ár. Hann spilaði einn leik á HM 2014, í fræga 7-1 tapinu gegn Þýskalandi í undanúrslitum, sem reyndist síðasti leikur hans í gulu treyjunni.

Árið 2015 fór hann til Wolfsburg áður en hann fann sitt annað heimili í Nice. Þar hefur hann leikið síðustu tíu árin og gengið í gegnum súrt og sætt.

Reynsluboltinn vildi klára feril sinn þar með sæmd, en Nice hafnaði í þriðja neðsta sæti frönsku deildarinnar á tímabilinu og fór því í umspil um sæti í deildinni.

Fyrri leiknum lauk með 0-0 jafntefli en Nice vann sannfærandi 4-1 sigur í síðari leiknum þar sem Dante fékk heiðursskiptingu undir lokin.

„Sú tilfinning að halda okkur upp er yfirþyrmandi. Það er ekki enn að sígjast inn að þetta hafi verið síðasti leikurinn. Nice á ekki heima í B-deildinni.“

„Ég er ekki fullkominn en ég gaf allt mitt,“
sagði Dante.

Samkvæmt heimildum Sport í Frakklandi mun Dante fara beint í þjálfun, en hann er nálægt því að ganga frá samkomulagi um að taka við varaliði Bayern München. Verður gaman að fylgjast með þjálfaraferlinum hjá þessum litríka karakter.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner