Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Gordon fer í læknisskoðun á morgun
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er á leið til Barcelona frá Newcastle United. Hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun og í kjölfarið skrifa undir langtímasamning.

Newcastle samþykkti rúmlega 70 milljóna punda tilboð Barcelona í kvöld.

Bayern München var mjög áhugasamt um Gordon og ræddi við umboðsmenn hans, en Englendingurinn valdi að fara til Barcelona.

Fabrizio Romano hefur sett „Here we go!“ á skiptin og því stutt í (Staðfest) svigann.

Samkvæmt Romano mun Gordon fljúga til Barcelona á morgun og gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir hjá félaginu.

Þetta setur félagaskipti Marcus Rashford í hættu, en hann eyddi tímabilinu á láni hjá Barcelona frá Manchester United. Barcelona getur gert félagaskiptin varanleg fyrir 25 milljónir punda, en það verður að teljast heldur ólíklegt úr þessu.

Gordon, sem er 25 ára gamall, skoraði 17 mörk með Newcastle á tímabilinu, þar af tíu í Meistaradeildinni.

Hann verður annar Englendingurinn til að spila með Barcelona á þessari öld.
Slapp
banner
banner
banner